Samningur um viðurkenningu og fullnustu erlendra gerðardómsúrskurða

Miðvikudaginn 12. desember 2001, kl. 10:42:36 (3040)

2001-12-12 10:42:36# 127. lþ. 50.10 fundur 326. mál: #A samningur um viðurkenningu og fullnustu erlendra gerðardómsúrskurða# þál., Frsm. TIO
[prenta uppsett í dálka] 50. fundur, 127. lþ.

[10:42]

Frsm. utanrmn. (Tómas Ingi Olrich):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. um till. til þál. um aðild að samningi um viðurkenningu og fullnustu erlendra gerðardómsúrskurða.

Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að samþykkja að Ísland gerist aðili að samningi um viðurkenningu og fullnustu erlendra gerðardómsúrskurða en þessi samningur var gerður var í New York 10. júní 1958.

Meginmarkmið samningsins er að tryggja gagnkvæma viðurkenningu aðildarríkjanna á gerðardómsúrskurðum þannig að þeir öðlist réttaráhrif og verði fullnægt í samræmi við réttarfarsreglur í því aðildarríki sem fullnustu er leitað.

Aðild að samningnum kallar á lagabreytingar hér á landi og hefur dóms- og kirkjumálaráðherra þegar lagt fram frumvarp til laga um breyting á lögum nr. 53/1989, um samningsbundna gerðardóma, og er með því ætlunin að uppfylla skyldur Íslands samkvæmt samningnum.

Utanrmn. leggur til að tillagan verði samþykkt.

Undir nál. skrifa Tómas Ingi Olrich, Magnús Stefánsson, Þórunn Sveinbjarnardóttir, Árni Ragnar Árnason, Steingrímur J. Sigfússon, Jónína Bjartmarz og Jóhann Ársælsson.