Samningar um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum 2002

Miðvikudaginn 12. desember 2001, kl. 10:44:14 (3041)

2001-12-12 10:44:14# 127. lþ. 50.11 fundur 327. mál: #A samningar um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum 2002# þál., Frsm. TIO
[prenta uppsett í dálka] 50. fundur, 127. lþ.

[10:44]

Frsm. utanrmn. (Tómas Ingi Olrich):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. um till. til þál. um staðfestingu samninga um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2002.

Hinn 6. maí 1996 var undirrituð í Ósló bókun um verndun, skynsamlega nýtingu og stjórnun veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum í Norðaustur-Atlantshafi. Aðilar eru strandríkin fjögur, Ísland, Færeyjar, Noregur og Rússland.

Á fundi aðila í London 5.--9. nóvember sl. náðist samkomulag um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2002. Heildaraflamarkið var ákveðið 850.000 lestir og er því aflamarkið óbreytt frá árinu 2001. Við ákvörðun heildaraflamarks er nú í fyrsta skipti byggt á þeirri nýtingarstefnu sem aðilar samþykktu haustið 1999 og er það jafnframt í samræmi við tillögu ráðgjafanefndar Alþjóðahafrannsóknaráðsins.

Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.

Þórunn Sveinbjarnardóttir, Steingrímur J. Sigfússon og Jóhann Ársælsson rita undir álitið með fyrirvara.

Undir nál. rita Tómas Ingi Olrich, Magnús Stefánsson, Árni Ragnar Árnason og Jónína Bjartmarz, en þau Þórunn Sveinbjarnardóttir, Steingrímur J. Sigfússon og Jóhann Ársælsson rita undir álitið með fyrirvara.