Tekjuskattur og eignarskattur o.fl.

Miðvikudaginn 12. desember 2001, kl. 13:10:51 (3058)

2001-12-12 13:10:51# 127. lþ. 50.1 fundur 114. mál: #A tekjuskattur og eignarskattur o.fl.# (skatthlutföll, verðbólguleiðréttingar, einstaklingar í atvinnurekstri o.fl.) frv. 133/2001, JóhS (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 50. fundur, 127. lþ.

[13:10]

Jóhanna Sigurðardóttir:

Herra forseti. Hér er verið að leggja til hækkun á fríeignarmarki vaxtabóta til að koma í veg fyrir að hækkun á fasteignamati skerði vaxtabætur og er það í samræmi við loforð sem gefið var þar að lútandi frá hæstv. fjmrh. og efh.- og viðskn. í sumar. Nú reynir á það í þessari atkvæðagreiðslu hvort standa eigi við það loforð.