Magnús Stefánsson (andsvar):
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. fyrir framsöguna en það eru tvær spurningar sem ég vil þó bera upp. Í fyrsta lagi varðandi 3. gr. frv. þar sem gert er ráð fyrir byggðakvótum sem verði úthlutað til sjávarbyggða, hvort fyrir liggi hugmyndir að reglum hvernig eigi að úthluta þessum heimildum. Ég held að mikilvægt sé að það liggi fyrir við afgreiðslu málsins.
Í öðru lagi er ljóst að með frv. er verið að færa veiðiheimildir frá aflamarksbátum til smábáta. Því spyr ég hvort sjútvn. hafi skoðað hvaða áhrif þessi tilfærsla gæti haft á sjávarbyggðir þar sem verulega er byggt á útgerð aflamarksbáta sem við vitum að er víða úti um landið, hvort hv. sjútvn. hafi skoðað það mál hvaða áhrif það hefði.
Í þriðja lagi vil ég bara lýsa ánægju minni með það að meiri hlutinn gerir tillögu um að 6. gr. frv. verði felld út. Ég held að það væri óráðlegt að opna á milli smábátakerfisins og aflamarkskerfisins.