Umhverfisráðherra (Siv Friðleifsdóttir):
Virðulegur forseti. Umhvrh. hefur engu sérstöku hlutverki að gegna varðandi það að ýta á eftir framkvæmdaraðilum í umhverfismati. Það er ekki okkar hlutverk. Ég tel að hv. þingmanni sé það ljóst. Landgræðslan hefur samkvæmt nýjustu upplýsingum ekki lokið þessum rannsóknum og umhvrn. hefur ekkert með forgangsröðun hjá Landgræðslunni að gera og stýringu þeirra á því í hvaða verkefnum þeir eru.
Hins vegar má segja að uppblástur hefur verið eitt af meginvandamálum í umhverfismálunum á Íslandi. Þrátt fyrir það erum við ekki að sýsla með forgangsröðun hjá Landgræðslunni. Þeir stýra því sjálfir þannig að þeir verða sjálfir að taka ákvörðun hvenær og hvort þeir fara í nýtt mat á umhverfisáhrifum á þessari framkvæmd eða í frekara mat eða hvort þeir geri það ekki og með hvaða hraða þeir gera það. Það er ekki hlutverk umhvrn. að hlutast beint til um það.
Hins vegar hafa mál eins og landgræðsla og skógrækt sem við ræðum í næstu fyrirspurn verið mjög tengd umhverfismálunum. Því er ekki að neita. En það er ekki hlutverk umhvrn. að kalla eftir umhverfismati á einstökum framkvæmdum. Hlutverk okkar er að úrskurða ef kærur beinast til okkar vegna úrskurðar Skipulagsstofnunar á einstökum framkvæmdum í umhverfismati. Því verður að koma í ljós hvort og hvenær Landgræðslan kemur inn með nýtt mat. Segja má að æskilegt sé að þeir geri það. En það er spurning hvenær þeir telja sig vera tilbúna til þess. Ég get ekki svarað því á þessari stundu og vil ítreka að þessi stofnun fellur ekki undir umhvrn. og ég hef engar lagaheimildir til að beita mér í því máli.