Frsm. minni hluta efh.- og viðskn. (Jóhanna Sigurðardóttir) (andsvar):
Herra forseti. Þegar verið er að telja fram þann heildarkostnað sem nemendur þurfa að standa undir, þá er verkfærakostnaður auðvitað tekinn með sem er afar mikill hjá ungu fólki sem stundar verknám. Við erum að sýna fram á að hæstv. ríkisstjórn og hæstv. menntmrh. er að leggja til að til viðbótar þeim mikla kostnaði sem fólk þarf að bera fyrir utan háa húsaleigu og allt sem því fylgir, er verið að leggja auknar byrðar á nemendur sem skiptir verulegu máli eins og ég hef nefnt. 25.000 kr. bara að því er varðar efnisgjöldin skiptir máli.
Og hvað er hæstv. menntmrh. að segja? Að skólarnir muni ekki nýta sér þá hækkun? Vissulega munu þeir nýta sér hana. Við skulum fara í gegnum það að ári hvernig það hefur komið út, vegna þess að framlög skólanna eru lækkuð sem þessu nemur á móti. Hvernig eiga skólarnir að fara að því að halda uppi eðlilegri kennslu sem þeim er gert samkvæmt lögum nema nýta sér þá að fullu þá heimild sem er knúin hér í gegn með mjög óeðlilegum hætti af ríkisstjórninni, og sem mun stuðla að því að hér verður ekki jafnrétti til náms eins og ég hélt þó að væri þjóðarsátt um í þjóðfélaginu.