Frsm. minni hluta efh.- og viðskn. (Jóhanna Sigurðardóttir) (andsvar):
Herra forseti. Það er auðvitað ágætt út af fyrir sig að hv. þm. er ánægð með stefnu Sjálfstfl. í skólamálum en ég býst við að þorri nemenda sé það ekki. 3.200 nemendur mótmæltu þessari hækkun á innritunar- og efnisgjöldum þegar þau komu fram. Það er náttúrlega verulegur hluti nemenda. Og það er athyglisvert að hv. þm. bendir á að sjálfstæðismenn eru að sækja fyrirmynd sína til Kína í skólamálum. Það er athyglisvert, og hefur kristallast í þessari umræðu að stefna sjálfstæðismanna er öll önnur en stefna okkar jafnaðarmanna að því er varðar skólamálin og álagningu í gjöldum á nemendur. Við viljum jafnrétti til náms fyrir alla óháð efnahag en það er alveg ljóst að það er ekki boðið upp á það í stefnu sjálfstæðismanna.