Jóhanna Sigurðardóttir:
Herra forseti. Við í Samfylkingunni mótmælum harðlega hækkun á gjöldum á námsmenn og sjúklinga sem felast í þessu frv. og þeirri reglugerð sem heilbrrh. mun setja um stóraukna gjaldtöku á lyf og læknisþjónustu. Við vörum við gjaldtöku á sjúkraheimilum sem, ef að líkum lætur, verður upphafið að innritunar- eða matarskatti á sjúkrahúsum. Verðlagsáhrifin af þessum aðgerðum eru líka olía á eld verðbólgunnar og getur ráðið úrslitum um að verðlagsmarkmið í samkomulagi aðila vinnumarkaðarins nái ekki fram. Við vísum allri ábyrgð af þessu máli á ríkisstjórnina. Ég segi nei.