Þingfrestun

Föstudaginn 14. desember 2001, kl. 16:32:13 (3403)

2001-12-14 16:32:13# 127. lþ. 56.94 fundur 255#B þingfrestun#, forsrh.
[prenta uppsett í dálka] 56. fundur, 127. lþ.

[16:32]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

Forseti Íslands gjörir kunnugt: ,,Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 127. löggjafarþings, frá 14. desember 2001 til 22. janúar 2002.

Gjört á Bessastöðum, 13. desember 2001.

Ólafur Ragnar Grímsson.

--------------------

Davíð Oddsson.

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.``

Samkvæmt þessu umboði og með vísun til samþykkis Alþingis lýsi ég því hér með yfir að fundum Alþingis, 127. löggjafarþings, er frestað.

Leyfi ég mér að óska hv. alþingismönnum og starfsmönnum þingsins, svo og landsmönnum öllum, gleðilegra jóla og farsæls nýárs.