Ferill 141. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 141  —  141. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um skipulagða áfallahjálp innan sveitarfélaga þegar alvarleg og mannskæð slys ber að höndum.

Flm.: Hjálmar Árnason, Magnús Stefánsson,     Árni Steinar Jóhannsson,


Guðrún Ögmundsdóttir, Katrín Fjeldsted.



    Alþingi ályktar að ríkisstjórn í samstarfi við sveitarfélög komi á skipulagðri áfallahjálp innan sveitarfélaga til að bregðast við þegar alvarleg og mannskæð slys ber að höndum.

Greinargerð.


    Með þingsályktunartillögu þessari er mælst til þess að ríkisstjórnin beiti sér fyrir því í samstarfi við sveitarfélögin að koma á skipulagðri áfallahjálp innan sveitarfélaga og/eða í samstarfi þeirra.
    Við alvarleg og mannskæð slys er höfuðáhersla lögð á fyrstu aðstoð, þ.e. björgunaraðgerðir og líkamlega aðhlynningu fórnarlamba. Björgunarsveitir, lögregla, sjúkraflutningamenn og fjöldi sjálfboðaliða hafa staðið sig með eindæmum vel við slíkar aðgerðir. Hins vegar virðist sem markviss áfallahjálp í kjölfarið sé yfirleitt ekki til staðar. Of mörg dæmi benda eindregið til þess. Fórnarlömb slysa og náttúrhamfara telja sig mörg skilin eftir óstudd og í óvissu eftir að fyrstu aðgerðum lýkur. Virðist sem sjaldan sé í boði kerfisbundin aðstoð við að takast á við sorg í kjölfar slysa og náttúruhamfara. Gildir það um andlega líðan og tilfinningar fórnarlamba, fjármál þeirra og aðstæður til að fóta sig í tilverunni að nýju. Fagleg aðstoð virðist af skornum skammti. Þá virðist sem áfallahjálp til björgunarfólks, fjölskyldna fórnarlamba og vinnufélaga sé lítil sem engin. Mannskæð slys hafa djúp og varanleg áhrif á alla aðstandendur, jafnt innan fjölskyldna sem meðal vinnufélaga. Oft hafa válegir atburðir áhrif á heilt samfélag. Mikilvægt er að bregðast rétt við slíkri sorg, af fagmennsku og með kerfisbundnum hætti.
    Í tillögunni er gert ráð fyrir því að í hverju sveitarfélagi eða í samstarfi nærliggjandi sveitarfélaga sé komið á markvissri stjórn áfallahjálpar. Slíkri stjórn er ætlað að bregðast við kerfisbundið þegar ósköp dynja yfir. Stjórnunarnefndinni er ætlað að taka frumkvæði í að veita þeim faglega áfallahjálp sem hinir válegu atburðir snerta mest. Má þar benda á þá sem lifa af atburðina og fjölskyldur þeirra, ættingja þeirra sem kunna að hafa farist, vinnufélaga fórnarlamba, björgunarfólk og aðra sem tengjast hinum válegu atburðum náið.
    Mikilvægt er að slík stjórnunarnefnd sé skipuð formlega með aðal- og varamönnum þannig að þegar hörmungar dynja yfir komi nefndin strax saman, skilgreini aðstæður, bregðist markvisst við og af fagmennsku.
    Ekki er óeðlilegt að í hverri stjórnunarnefnd áfallahjálpar sveitarfélaga sitji fulltrúar heilsugæslu, prestar, lögreglumenn, björgunarsveitarfólk, fulltrúar peningastofnunar, tryggingafélags, skóla og atvinnulífs.
    Þá er eðlilegt að skipuð verði yfirstjórn áfallahjálpar fyrir landið allt til þess að veita staðbundnum stjórnum áfallahjálpar faglega ráðgjöf sem og til að fylgjast með skipan og fyrirkomulagi áfallahjálpar á hverjum stað. Gildi fræðslu fyrir einstaklinga í slíkum stjórnum, á vinnustöðum og heimilum er ómetanlegt.
    Áhrif mannskæðra slysa geta verið langvarandi og alvarleg fyrir einstaklinga jafnt sem samfélagið í heild. Segja má að aðstoð við að takast á við sorgina sé jafnmikilvæg og fyrstu björgunaraðgerðir. Því telja flutningsmenn það hafa mikið forvarnagildi fyrir samfélagið í heild að markvissum aðgerðum við sorgarviðbrögðum verði komið á þannig að unnið verði kunnáttusamlega að því að einstaklingar og hópar nái sem fyrst fyrri styrk sínum eftir að alvarleg og mannskæð slys ber að höndum.