Ferill 309. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 385 — 309. mál.
Fyrirspurn
til menntamálaráðherra um ráðstöfunarfé ráðherra og ráðstöfun óskipts fjár á safnliðum.
Frá Sigríði Jóhannesdóttur og Kolbrúnu Halldórsdóttur.
1. Hvernig hefur verið varið 18 millj. kr. framlagi til ráðstöfunar samkvæmt ákvörðun ráðherra á lið 02-199 í fjárlögum síðastliðin tvö ár, sundurliðað eftir verkefnum?
2. Hvernig hefur ráðherra varið óskiptu fé síðastliðin tvö ár á safnliðunum 02-919-1.90 Söfn, 02-982-1.90 Listir, 02-983-1.10 Fræðistörf, 02-983-1.11 Styrkir til útgáfumála, 02-984-1.90 Norræn samvinna, 02-988-1.90 Æskulýðsmál, 02-989-1.90 Ýmis íþróttamál og 02-999-1.90 Ýmis framlög?
Skriflegt svar óskast.