Ferill 324. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 411 — 324. mál.
Fyrirspurn
til sjávarútvegsráðherra um kynningu á málstað Íslands í hvalveiðimálum.
Frá Magnúsi Stefánssyni.
1. Hvernig hefur kynningu á málstað Íslands í hvalveiðimálum verið háttað síðustu ár?
2. Hver hefur árlegur kostnaður við kynningu á málstað Íslendinga orðið sl. þrjú ár?
3. Hver eru helstu áform íslenskra stjórnvalda um að vinna málstað Íslendinga fylgi á næstu árum og hver er áætlaður kostnaður við það?