Ferill 332. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 423  —  332. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um greiðslur fyrir sjúkra- og innanlandsflug.

Frá Guðjóni A. Kristjánssyni.



     1.      Hversu miklu fé úr ríkissjóði var varið árlega til að styrkja sjúkraflug og innanlandsflug sl. tíu ár og það sem af er þessu ári, skipt eftir landsvæðum eða kjördæmum?
     2.      Hvaða samningar um greiðslur eru í gildi og hverjar eru áætlanir næsta árs, skipt eftir landsvæðum eða kjördæmum?
     3.      Viðhald hvaða smærri flugvalla er á vegum ríkisins og um hvaða flugvelli hafa verið gerðir verksamningar við samtök eða sveitarfélög?
     4.      Hvaða smærri flugvellir hafa verið lagðir af árlega sl. tíu ár?


Skriflegt svar óskast.