Ferill 496. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 786  —  496. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um kostnað við varnaðarmerkingar á tóbaki.

Frá Rannveigu Guðmundsdóttur.



     1.      Hver er árleg sala tóbaks hérlendis og hversu stór hluti hennar er sala vindlinga?
     2.      Hver er kostnaður við að merkja tóbak með aðvörun um skaðsemi þess, annars vegar árlegur heildarkostnaður og hins vegar kostnaður á einingu, t.d. einn vindlingapakka?
     3.      Hver ber kostnað af varnaðarmerkingum á tóbaki?


Skriflegt svar óskast.


























Prentað upp.