Ferill 506. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 798  —  506. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um samninga við lággjaldaflugfélög.

Flm.: Árni Steinar Jóhannsson, Jón Bjarnason, Þuríður Backman.



    Alþingi ályktar að fela samgönguráðherra að kanna hvort unnt sé að semja við lággjaldaflugfélög um flugferðir til Akureyrar eða Egilsstaða.

Greinargerð.


    Árið 2000 hóf lággjaldaflugfélagið GO reglubundnar flugferðir um Keflavíkurflugvöll. Með því gafst efnalitlum ferðamönnum kostur á að komast til Íslands og jafnframt bauðst íslenskum ferðamönnum að fljúga ódýrt til meginlands Evrópu. Með tilkomu nýs ferðamannahóps hér á landi efldist þjónusta við efnalitla ferðamenn, svo sem ódýr gisting. Það segir sig sjálft að með brotthvarfi flugfélagsins GO minnkar grundvöllur fyrir þjónustu af því tagi umtalsvert. Auk þess hlýtur að teljast bagalegt fyrir íslenska ferðamenn að geta ekki lengur nýtt sér þjónustu lággjaldaflugfélags.
    Á Akureyri og Egilsstöðum eru alþjóðaflugvellir. Betri nýting þeirra væri ferðaþjónustunni í landinu tvímælalaust til mikilla hagsbóta.
    Með tillögu þessari er lagt til að samgönguráðherra kanni til fulls hvort semja megi við lággjaldaflugfélag um að lenda á Akureyri eða Egilsstöðum þar sem kostnaður flugfélaga vegna umferðar um vellina þar yrði mun lægri en á Keflavíkurflugvelli.