Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 932, 127. löggjafarþing 563. mál: lögskráning sjómanna (öryggisfræðsla).
Lög nr. 12 11. mars 2002.
Þingskjal 932, 127. löggjafarþing 563. mál: lögskráning sjómanna (öryggisfræðsla).
Lög nr. 12 11. mars 2002.
Lög um breytingu á lögum um lögskráningu sjómanna, nr. 43/1987, með síðari breytingum.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. laganna:- 7. tölul. 1. mgr. orðast svo: Yfirlýsingu um að skipverji hafi hlotið öryggisfræðslu í Slysavarnaskóla sjómanna eða á annan hátt. Siglingastofnun er heimilt að veita skipverja tímabundinn frest í eitt sinn til þess tíma sem hann er skráður á öryggisfræðslunámskeið hjá Slysavarnaskóla sjómanna eða öðrum viðurkenndum aðila. Greiða skal gjald fyrir veittan frest og skulu þau gjöld standa undir raunkostnaði Siglingastofnunar Íslands við afgreiðslu hans. Gjöld skulu ákveðin í gjaldskrá stofnunarinnar.
- 2. mgr. orðast svo:
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 7. mars 2002.