Ferill 567. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.



127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 982  —  567. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um fullgildingu samnings milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) og Jórdaníu.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Kjartan Jóhannsson og Magnús K. Hannesson frá utanríkisráðuneyti.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til fullgildingar á samningi milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) og hasjemíska konungsríkisins Jórdaníu sem undirritaður var í Vaduz 21. júní 2001.
    Markmiðið með gerð þessa fríverslunarsamnings er einkum að tryggja jafnvægi milli EFTA-ríkjanna og Evrópusambandsríkjanna í viðskiptum við Jórdaníu en Evrópusambandið og Jórdanía hafa lokið gerð fríverslunarsamnings sín á milli. Gerð samningsins er þáttur í viðleitni til að stuðla að viðskiptatengslum landa norðausturstrandar Miðjarðarhafs og Miðausturlanda við Evrópu og þróun í átt til fríverslunar um allt þetta svæði.
    Þórunn Sveinbjarnardóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.

Alþingi, 12. mars 2002.



Sigríður A. Þórðardóttir,


form., frsm.


Einar K. Guðfinnsson.


Jónína Bjartmarz.



Lára Margrét Ragnarsdóttir.


Magnús Stefánsson.


Rannveig Guðmundsdóttir.



Steingrímur J. Sigfússon.