Framhaldsfundir Alþingis

Þriðjudaginn 21. janúar 2003, kl. 13:31:49 (2810)

2003-01-21 13:31:49# 128. lþ. 61.91 fundur 350#B framhaldsfundir Alþingis#, forsrh.
[prenta uppsett í dálka] 61. fundur, 128. lþ.

[13:31]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

Forseti Íslands hefur gefið út svohljóðandi bréf:

,,Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Ég hefi ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda þriðjudaginn 21. janúar 2003 kl. 13.30.

Gjört í Reykjavík, 10. janúar 2003.

Ólafur Ragnar Grímsson.

-------------------

Davíð Oddsson.

Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.``

Fundir Alþingis hefjast því nú á ný. Hæstv. forseta, hv. alþingismönnum svo og starfsmönnum Alþingis óska ég gleðilegs árs, þakka hið liðna og býð menn velkomna til þingstarfa og læt í ljós þá ósk og von að störf okkar megi verða landi og lýð til blessunar.