BjörgvS fyrir MF

Þriðjudaginn 21. janúar 2003, kl. 13:35:04 (2813)

2003-01-21 13:35:04# 128. lþ. 61.93 fundur 352#B BjörgvS fyrir MF#, Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 61. fundur, 128. lþ.

[13:35]

Forseti (Halldór Blöndal):

Borist hefur svohljóðandi bréf:

,,Þar sem ég get ekki sótt þingfundi á næstunni vegna veikinda óska ég þess með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa að 2. varaþingmaður Samfylkingarinnar í Suðurl., Björgvin G. Sigurðsson, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni og forföllum 1. varaþingmanns.

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.

Margrét Frímannsdóttir.``

Enn fremur hefur borist svohljóðandi bréf:

,,Hér með tilkynnist að vegna anna get ég, sem er 1. varaþingmaður Samfylkingarinnar á Suðurlandi, ekki tekið sæti Margrétar Frímannsdóttur nú í veikindaleyfi hennar.

Reykjahlíð, þann 15. janúar 2003.

Katrín Andrésdóttir,

héraðsdýralæknir á Suðurlandi.``

Björgvin G. Sigurðsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa á ný. Fyrir hönd okkar alþingismanna sendi ég Margréti Frímannsdóttur hlýjar kveðjur frá Alþingi með góðum óskum um skjótan bata.