Þingvellir

Miðvikudaginn 22. janúar 2003, kl. 15:01:48 (2903)

2003-01-22 15:01:48# 128. lþ. 63.2 fundur 111. mál: #A Þingvellir# fsp. (til munnl.) frá forsrh., forsrh. (svar)
[prenta uppsett í dálka] 63. fundur, 128. lþ.

[15:01]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

Herra forseti. Ég þakka þessa umræðu. Það er alveg ljóst að öll forusta í málinu verður auðvitað á forræði Þingvallanefndar með atbeina forsætisráðuneytisins. En það er einnig eðlilegt að menntmrn. vegna UNESCO og umhvrn. vegna náttúru staðarins hafi hönd í bagga og komi að málinu eins og gert hefur verið og það er góður vilji hjá öllum þessum aðilum til að vinna saman að þessu verkefni og koma því í höfn.