Pétur H. Blöndal:
Herra forseti. Við ræðum hér frv. til laga um Lýðheilsustöð. Henni er ætlað að taka yfir starfsemi fjögurra stofnana eða ráða og sameina í eina.
Verkefni þessara stofnana eru ýmis og ég vil byrja á því að benda á atriði sem kannski þyrfti að skoða betur. Í frv. stendur að helstu verkefni Lýðheilsustöðvar séu m.a. að annast áfengis- og vímuvarnir og manneldi. Það getur varla verið ætlun að stofnunin stundi manneldi eins og kálfaeldi heldur væntanlega manneldisfræðslu eða fræðslu um manneldi. (Gripið fram í: ... að klóna Pétur.)
Það er mjög mikilvægt að velferðarkerfið sé skilvirkt og eins ódýrt og hægt er en skili jafnframt því sem við viljum. Í því felst m.a. góð stjórnun og stjórnunin hefur mikið að segja í velferðarkerfinu. Hér er lagt til að sameina fjórar stofnanir í eina og þá hefði maður talið að stjórnun yrði skilvirkari, betri, skörun yrði afnumin þar sem verkefni skarast, og fram kæmi aukin hagkvæmni, þ.e. menn mundu ná fram með betri stjórnun, með góðum forstjóra, hagræðingu og sparnaði en svo er ekki í þessu máli.
Hér er gert ráð fyrir því að forstjórinn kosti 8 millj. á ári, dágóð laun það, og svo þarf að ráða fjármálastjóra líka. Og það er eins og ekkert sparist neins staðar í rekstri þessara fjögurra ráða eða stofnana sem starfa í dag. Þessu er ég eindregið á móti og það leiðir til þess að ég er á móti frv. í heild sinni. Ég vil nefnilega að velferðarkerfið sé skilvirkt og því sé vel stjórnað. Og ef menn ætlast til þess að það komi forstjóri sem ekki skili neinu, engri arðsemi, ekki í stjórnun eða neinu er alveg óþarfi að fara út í þetta. Þá getur maður alveg eins látið það vera eins og það er í dag. Það eru enda engar kröfur gerðar til forstjórans í þessu frv.
Samkvæmt umsögn fjmrn. er gert ráð fyrir viðbótarkostnaði, laun forstjóra verði 8,3 millj. kr. á ári héðan í frá, 5,7 millj. þurfi til ráðningar fjármálastjóra og svo 4 millj. til aukins skrifstofurekstrar. Það á ekkert að spara neins staðar. Þessir tveir starfsmenn eiga engu að skila, herra forseti.
Ég hefði talið að góð stjórnun ætti að spara heilmikið og það ætti að ná fram meiri velferð á þessu sviði fyrir minni pening með því að sameina stofnanirnar. En svo er ekki. Ég er því á móti þessu. Ég vil að menn komi með nýtt frv. þar sem gert er ráð fyrir því að það sparist eitthvað í rekstri þessara stofnana sem um er að ræða.