Launamunur kynjanna hjá hinu opinbera

Mánudaginn 27. janúar 2003, kl. 15:59:56 (3047)

2003-01-27 15:59:56# 128. lþ. 65.95 fundur 380#B launamunur kynjanna hjá hinu opinbera# (umræður utan dagskrár), Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 65. fundur, 128. lþ.

[15:59]

Forseti (Halldór Blöndal):

Ég vil áminna þingmenn um að byrja ekki á nýjum efnisatriðum eftir að slegið hefur verið í bjölluna. --- Ég heyri að einn hv. þm. hlær að þessu en hér erum við að reyna að halda uppi strangri gæslu og reyna að sjá til að menn haldi sig innan þess ramma sem þeir eiga að... (Gripið fram í.) Ég ætla að biðja hv. þm. að grípa ekki fram í.