Afgreiðsla forsætisnefndar á beiðni um skýrslu

Mánudaginn 03. febrúar 2003, kl. 15:18:25 (3293)

2003-02-03 15:18:25# 128. lþ. 70.92 fundur 392#B afgreiðsla forsætisnefndar á beiðni um skýrslu# (aths. um störf þingsins), Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 70. fundur, 128. lþ.

[15:18]

Forseti (Halldór Blöndal):

Að gefnu tilefni vil ég taka fram að Guðmundur Björnsson var forstjóri Landssímans þegar ég hætti sem samgrh.

Ég vil í annan stað leiðrétta misskilning sem komið hefur upp. Starfslokasamningur hefur aldrei verið til umræðu í forsn. og ekkert erindi hefur borist um það til forsn. að birta starfslokasamning fyrrum forstjóra Símans né nokkurs annars fyrrverandi embættismanns, enda fellur slík beiðni ekki undir forsn. (ÖS: Það hefur komið fram að ...) Það hefur ekki komið fram, hv. þm. Ef hv. þm. vill skrifa slíkt bréf til forsn. þá tel ég rétt að hann geri það.