Lúðvík Bergvinsson:
Virðulegi forseti. Hv. þm. Össur Skarphéðinsson kom hér upp og spurði hæstv. forseta einfaldrar spurningar. Hún var sú hvort það væri við hæfi að hann úrskurðaði í þessu tiltekna máli sem fjallar um það hvort þingið fái aðgang að tilteknum upplýsingum og hvort Ríkisendurskoðun vinni þær upplýsingar fyrir þingið. Hæstv. forseti úrskurðaði að þessi beiðni næði ekki fram að ganga.
Hv. þm. Össur Skarphéðinsson spurði þess vegna: Er við hæfi að forseti úrskurði í þessu máli vegna þess að núv. hæstv. forseti réð þann tiltekna mann sem umræddur starfslokasamningur og fjárhagsleg uppgjör honum tengd tengjast? Spurningin er einfaldlega þessi: Er við hæfi að hæstv. forseti úrskurði í málinu? Hæstv. forseti hefur engu svarað og snúið alfarið út úr málinu og síðan kemur hæstv. samgrh. hér upp og segir að verið sé að vega að forseta með tilteknum hætti. Hv. þm. Guðmundur Árni Stefánsson er einfaldlega að sinna sinni þingskyldu, að fylgja því eftir sem hlutverk þingsins er, að afla upplýsinga um það sem er að gerast hjá framkvæmdarvaldinu. Menn geta ekki borið það fyrir sig að menn séu vondir við hv. þm. Halldór Blöndal, að hann eigi að hafa einhverja sérstaka samúð sökum þess eins að hann situr í forsetastóli. Það er röksemdafærsla sem alls ekki gengur upp.
En eftir stendur spurningin, virðulegi forseti, sem þú verður að svara, hæstv. forseti. Hún er þessi: Er við hæfi að hæstv. forseti úrskurði í máli sem lýtur að ráðningarsamningi sem hann sjálfur kom að? Og við bíðum spennt eftir svari, virðulegi forseti.