Samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson) (andsvar):
Herra forseti. Í ræðu minni áðan gerði ég grein fyrir því að við erum að flýta framkvæmdum, við erum að stórauka fjárveitingar og framlög til uppbyggingar vega. Hv. þm. virðist ekki hafa tekið eftir því. Við erum að setja af stað mikið framkvæmdaátak, mikið grettistak, við erum að setja af stað jarðgöng, framkvæmdir við jarðgangagerð á Íslandi sem eru milljarðar, 1,5--2 milljarðar á ári sem bætast þar við og m.a. á norðausturhluta landsins og Austfjörðum reyndar. Það er því verið er að auka vegaframkvæmdir ef við lítum til þess að á árinu 2000 voru 11,3 milljarðar til framkvæmda í vegamálum. Á þessu ári gerum við ráð fyrir 13 milljörðum þannig að við erum að auka þetta mjög mikið svo ekki sé talað um það hversu mikið við erum að auka vegaframkvæmdir og er ég þá með tölur á föstu verðlagi ársins í ár frá því sem var þegar hv. formaður Vinstri grænna var samgrh. Þá voru 7,2 milljarðar til vegagerðar á Íslandi, en við erum að gera ráð fyrir á 14. milljarð í framkvæmdir á þessu ári þannig að við erum að stórauka framkvæmdir í vegagerð og það er nauðsynlegt að hv. þm. átti sig á því.