Samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson) (andsvar):
Herra forseti. Ég vil nú þakka hv. 1. þm. Norðurl. e. fyrir undirtektir hans við samgönguáætlun og þær hugmyndir sem hann setti fram sem að sjálfsögðu þarf að athuga. Ég vil vekja athygli á því að farið hefur fram vinna við að gera úttekt á þessum styttingum og innan tíðar verður sú vinna kynnt af hálfu Vegagerðarinnar, þ.e. styttingu vega á milli landshluta.
Það sem leiddi mig aðallega upp í þetta ræðupúlt var að geta þess að þegar boðin var út flugleið frá Akureyri til Þórshafnar og Vopnafjarðar þá var jafnframt gert ráð fyrir flugleiðinni frá Akureyri til Egilsstaða. Að fenginni reynslu varð að samkomulagi að heimila flugfélaginu sem sá um þetta flug að falla frá því en gera hins vegar ráð fyrir sérstökum kjörum fyrir þá sem þurftu að fara þessar leiðir og veldu þá þann kost eða neyddust til þess í rauninni að fljúga frá Akureyri til Reykjavíkur og síðan frá Reykjavík til Egilsstaða. Þetta var inni í þessu útboði, inni í þessum samningi. Ég tel að ef kæmi sterkur vilji fram af hálfu heimamanna á Egilsstöðum og Akureyri til að taka þetta mál upp að nýju þá væri það opið. Ráð var fyrir þessu gert á sínum tíma í þeim fjárhæðum sem ætlaðar eru til styrkja við flugið. Mér þykir því eðlilegt og sjálfsagt að taka þettað til skoðunar ef vilji er til þess.