Jón Bjarnason (andsvar):
Herra forseti. Hv. þm. Halldór Blöndal og fyrrv. samgrh. fór mikinn í ræðustól um samgöngumál.
Hugmyndir hv. þm. eru þær að leggja sem flesta vegi að byggðabaki, helst um óbyggðir þar sem enginn býr því að mest samgöngubót fælist í leggja vegina þvers og kruss um hálendið í staðinn fyrir að fara með þá meðfram byggð þar sem fólkið er. Því vil ég spyrja hv. þm. hvar hann mundi nú, ef hann ætti þess kost, forgangsraða veginum á Norðausturlandi, veginum um Húsavík/Þórshöfn og Þórshöfn/Bakkafjörð og norðausturveg/Vopnafjörð, hvar hann mundi setja þetta í röðina gagnvart þessum vegum yfir hálendið eða utan byggðar á milli Suður- og Norðurlands, og sömuleiðis hvar hv. þm. telur að vegir á Vestfjörðum ættu að koma í þeirri röð, þ.e. vegasamgöngur milli byggða á Vestfjörðum.
Mér fannst í máli hv. þm. að kappið væri svo mikið í vegasamgöngum að helst ætti að leggja alla vegi sem fjærst byggð þannig að fólk gæti ekki notað þá, en hagkvæmnin væri því meiri sem færri gætu notað þá.