Samgönguáætlun fyrir árin 2003--2006

Þriðjudaginn 04. febrúar 2003, kl. 16:21:27 (3376)

2003-02-04 16:21:27# 128. lþ. 71.8 fundur 563. mál: #A samgönguáætlun fyrir árin 2003--2006# þál., 469. mál: #A samgönguáætlun fyrir árin 2003--2014# þál., HBl (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 71. fundur, 128. lþ.

[16:21]

Halldór Blöndal (andsvar):

Herra forseti. Ég hef ekki hugmynd um það hversu mikið flutningskostnaðurinn mun lækka en ég get fullvissað hv. þingmann um að flutningskostnaðurinn mun lækka við það að stytta leiðina um 80--85 km. Þá vil ég spyrja hv. þm.: Heldur hann að flutningskostnaðurinn muni hækka ef leiðin mundi lengjast um 80--85 km?