Samgönguáætlun fyrir árin 2003--2006

Þriðjudaginn 04. febrúar 2003, kl. 16:21:55 (3377)

2003-02-04 16:21:55# 128. lþ. 71.8 fundur 563. mál: #A samgönguáætlun fyrir árin 2003--2006# þál., 469. mál: #A samgönguáætlun fyrir árin 2003--2014# þál., KLM (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 71. fundur, 128. lþ.

[16:21]

Kristján L. Möller (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Halldóri Blöndal fyrir þessa yfirlýsingu sem hann gefur hér. Hún er náttúrlega alveg hárrétt. Auðvitað ætti flutningskostnaður að lækka við það að vegalengdir styttist.

En þá vil ég leyfa mér að spyrja hv. þm.: Hvaða aðferðir getum við notað aðrar til þess að lækka flutningskostnað til landsbyggðarinnar frá Reykjavík þar til þessi vegur verður orðinn að veruleika?