Kjartan Ólafsson (andsvar):
Herra forseti. Spurt er um Suðurstrandarveg og hann ræddur hér og hvort þingmenn séu með fyrirvara. Ég vonast til þess að hv. þm. Guðmundur Árni Stefánsson hafi verið í þingsal þegar hv. þm. Hjálmar Árnason hélt ræðu sína í dag. Ég vil jafnframt minna á að ég tel það vera hlutverk samgn. og þingsins að fara yfir þessa tillögu og vinna hana áfram. Ég hef lýst mínum skoðunum hvað þetta varðar og vilja mínum í þessu máli og vilja margra annarra og ég ætla að reyna að vinna að málunum með þeim hætti.