Samgönguáætlun fyrir árin 2003--2006

Þriðjudaginn 04. febrúar 2003, kl. 20:47:26 (3420)

2003-02-04 20:47:26# 128. lþ. 71.8 fundur 563. mál: #A samgönguáætlun fyrir árin 2003--2006# þál., 469. mál: #A samgönguáætlun fyrir árin 2003--2014# þál., ÖJ
[prenta uppsett í dálka] 71. fundur, 128. lþ.

[20:47]

Ögmundur Jónasson:

Herra forseti. Ég var heldur seinn til að biðja um andsvar við hæstv. samgrh. en mig langaði að biðja hann að skýra ögn nánar fyrir okkur hvernig stendur til að afla fjármuna, einkum til jarðgangagerðar sem hæstv. ráðherra upplýsti Alþingi um að yrði í tengslum við sölu ríkiseigna. Nú vil ég biðja hæstv. samgrh. að skýra fyrir okkur: Hvaða ríkiseignir er hann að tala um? Hvaða áform eru þar uppi? Hann verður að gefa þinginu tæmandi skýrslu um þetta áður en við ljúkum þessari umræðu.