Halldór Blöndal (andsvar):
Herra forseti. Það er von að hann velti því fyrir sér, hv. þm., hvort ég fari úr Sjálfstfl., einn frægasti flokkaflakkari landsins.
Ég vil segja við hv. þingmann að hann á nú um stundir að heita formaður Samfylkingarinnar. Hann kom hingað upp í októbermánuði og lýsti þeirri skoðun sinni að þungaskattur ætti að vera mismunandi eftir því hvar maður væri staddur á landinu. Venjan er sú að ef formaður stjórnmálaflokks gefur svo afdráttarlausa yfirlýsingu, ég tala ekki um ef það er á kosningaári, að hann geri tilraun til að útfæra tillöguna. Það hefur þessi hv. þm. ekki gert. Þetta er með öðrum orðum venjulegt yfirboð sem ekkert stendur á bak við. Það eru yfirboð af þessu tagi sem valda því að fólk hefur almennt séð í gegnum það að það sé ekki mjög að treysta á það sem hv. þm. segir í þessum ræðustól.