Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Það er rétt að minna á í þessu samhengi að Írakar hafa skuldbundið sig til og eru skuldbundnir til að afvopnast. Ályktun 1441 gerir ráð fyrir því að þeir afvopnist. Þeir verða að hlíta þeim skilmálum þannig að eitt af grundvallaratriðunum ef á að vera hægt að komast hjá átökum eins og við öll vonumst eftir er að Írak leggi sig meira fram í þessu máli og hlíti því eftirliti sem þar fer fram.
Auðvitað vonast allir til þess að hægt verði að komast hjá átökum. En ég held að það megi alveg ljóst vera að Saddam Hussein verður að standa frammi fyrir alvarlegum hlutum. Hann mun aldrei gefa sig nema hann viti að þjóðir heims ætli sér að afvopna hann og Írak. Það verður að vera alveg ljóst.