Jón Bjarnason:
Herra forseti. Umræðan um þáltill. hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur o.fl. þingmanna Samfylkingarinnar um afkomutryggingu aldraðra og öryrkja leiðir svo sannarlegan hugann að þeirri stöðu í þjóðfélaginu að bilið á milli hinna ríku og hinna fátæku eykst stöðugt. Ef svo heldur fram sem horfir, þá stefnir hér í þjóðfélag sem er tvískipt á grundvelli tekna. Slík þróun er andstæð hugsjónum flestra Íslendinga í raun.
Vinstri hreyfingin -- grænt framboð hefur lagt fram þingmál þar sem lögð er áhersla á að styrkja og efla velferðarkerfið og þannig verði búið að öllum einstaklingum að þeim verði tryggð ákveðin grunnsamfélagslaun hvort sem það eru aldraðir, öryrkjar, atvinnulausir eða aðrir sem ekki hafa tök á að vera á vinnumarkaði eða sjá fyrir sér með öðru móti.
Það er mjög mikilvægt að við hugsum um þetta mál heildstætt, að þetta sé sá grunnur sem við viljum byggja íslenskt samfélag á, að enginn samborgari okkar þurfi að líða skort vegna stöðu sinnar, aldurs eða annarra þjóðfélagsaðstæðna og jafnframt að tryggt sé að hverjum einasta Íslendingi séu tryggð ákveðin grunnsamfélagslaun, það sé sameiginleg ábyrgð okkar allra. Því miður höfum við séð þá þróun gerast á síðustu árum að stöðugt er verið að þrengja í raun hag þess fólks sem hlutfallslega hefur lægstar tekjur. Við höfum séð það í skattbreytingunum sem hafa orðið á síðustu árum að fólkið sem er með lægri og lægstu tekjur er farið að bera hlutfallslega mun meiri skattbyrði en áður var í skattheimtu ríkisins. Þetta er að mínu mati og þingmanna Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs röng stefna. Það er rangt að færa til skattbyrði í þjóðfélaginu yfir á þá sem hafa lægri tekjur. Þetta höfum við rætt um áður á þinginu.
Einnig er rangt að mati Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs að reka heilbrigðisþjónustuna á þann hátt að þeir sem þurfa að njóti hennar þurfi stöðugt að greiða hærri og hærri hlut í heilbrigðisþjónustunni. Þetta mismunar aftur þeim sem lægstar hafa tekjurnar.
Það var minnst t.d. á símann. Mjög mikilvægt er fyrir fólk, ekki síst það fólk sem er meira bundið heima hjá sér að hafa aðgang að síma en tengigjöld og afnotagjöld símans hafa einmitt verið að hækka. Þó að það séu nokkur hundruð krónur á mánuði sem hækkunin er, þá munar það miklu fyrir það fólk sem er tekjulægst.
Virðulegi forseti. Ég vildi koma í ræðustól til að taka undir þau sjónarmið sem hér hafa komið fram og árétta hversu mikilvægt og sjálfsagt það er fyrir okkur í íslensku samfélagi að allir þegnar landsins búi við afkomuöryggi og að öllum skuli tryggð samfélagslaun hvernig sem aðstæður þeirra annars kunna að vera. Jafnframt er fráleitt að binda t.d. samfélagslaun öryrkja við tekjur maka eða tengja þau öðrum en einstaklingnum sjálfum. Einstaklingurinn á að hafa þennan rétt og einstaklingurinn á að eiga þann sjálfstæða rétt að fá eðlileg grundvallarsamfélagslaun. Það er skylda okkar allra að sjá til þess að svo verði, ekki síst hv. Alþingis, að þannig sé búið um hnútana að allir búi við viðunandi afkomuöryggi og viðunandi samfélagslaun.