Pétur H. Blöndal (andsvar):
Herra forseti. Lágmarkstekjutrygging lífeyrisþega hefur hækkað úr 43 þús. kr. --- en þannig var það þegar Alþýðuflokkurinn fór úr stjórn og var með þennan málaflokk --- í 93 þús. kr. á þessu tímabili. Það mundi ég segja að væri bara mjög vel að verki staðið. Auðvitað má gera betur en þetta er miklu meiri hækkun en öll laun hafa hækkað, eða um 65% umfram verðlag, þ.e. kaupmátturinn hefur hækkað um 65%.
Hv. þm. sagði að 45% fengju engar greiðslur úr lífeyrissjóðum. Það er dálítið undarlegt í ljósi þess að það eru 23 ár síðan það varð skylda að borga í lífeyrissjóð. Það er virkilegt rannsóknarefni hvernig stendur á því að svona stór hluti þjóðarinnar komst hjá því að borga í lífeyrissjóð þrátt fyrir lagaskyldu.
Þá gat hv. þm. þess að húsnæðiskostnaðurinn hefði vaxið mikið, sérstaklega hjá þeim sem væru á leigumarkaði. Ég vil benda á það að hv. þm. sem þá var hæstv. ráðherra kom einmitt húsaleigubótum á sem hafa bætt stöðu þeirra sem eru á leigumarkaði --- en jafnframt hafa húsaleigubæturnar, eins og þekkt er alls staðar, hækkað leiguna. Kannski stendur því leigjandinn ekkert betur eftir með húsaleigubæturnar en áður. En þetta er líka eitt atriðið sem hefur bætt stöðu lífeyrisþega og sjaldan er minnst á, þ.e. að það voru teknar upp húsaleigubætur 1995.