Skráning skipa

Þriðjudaginn 11. febrúar 2003, kl. 13:35:23 (3706)

2003-02-11 13:35:23# 128. lþ. 76.1 fundur 157. mál: #A skráning skipa# (þurrleiguskráning fiskiskipa) frv. 10/2003, GE (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 76. fundur, 128. lþ.

[13:35]

Gísli S. Einarsson:

Virðulegur forseti. Ég tel að þetta frv. snúist einvörðungu um það að koma íslenskum áhöfnum af skipunum og skapa rými fyrir erlendar áhafnir á lægri launum og lakari kjörum. Ég hlýt að leggjast gegn þessu af fullum þunga, geri það og segi nei.