Jón Bjarnason (andsvar):
Herra forseti. Ég tek alveg undir það með hæstv. ráðherra að staða okkar í fjarskiptum er sterk enda hafa öflug og góð fjarskipti kannski meiri þýðingu fyrir okkur en margar aðrar þjóðir. Það er líka fagnaðarefni að verð á þessari þjónustu, a.m.k. almennri grunn- og fjarskiptaþjónustu, hefur verið hér með því lægsta sem gerist í heiminum og það held ég að sé einmitt að þakka því að við höfum búið við það að sími þjóðarinnar allrar, Landssími Íslands, hefur þar staðið að og þjóðin haft metnað til þess að efla og styrkja fjarskiptin til allra landshluta og til allra neytenda.
Það er allt gott um það að koma á samkeppni í ákveðnum þáttum fjarskipta þar sem því verður við komið á eðlilegan hátt, það er bara hið besta mál. En þess mikilvægara er að fleiri grunnþættir fari inn í hina skilgreindu alþjónustu sem allir landsmenn geta átt aðgang að. Það er mjög mikilvægt að það gerist. Þess vegna hef ég lagt áherslu á að GSM-þjónustan og breiðbandsþjónustan komi inn í alþjónustuna og verði byggð upp um allt land. Þetta tel ég líka mjög mikilvægt.
Ég vil kannski spyrja hæstv. ráðherra hér í andsvari: Hefur hann hugleitt hvort það sé mögulegt að koma inn í að efla fjarskiptakerfið í því átaki sem núna er verið að gera í samgöngumálum? Eru einhver skilgreind verkefni sem þegar í stað væri hægt að hleypa af stokkunum eða ýta hraðar á eftir í eflingu fjarskiptakerfisins, einmitt í tengslum við þetta átak í samgöngumálum sem hæstv. samgrh. boðaði í gær?