Samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson) (andsvar):
Herra forseti. Ég held að við Íslendingar leggjum að sjálfsögðu þunga áherslu á að stunda ábyrgar fiskveiðar, um annað þarf ekki að ræða. Ég get hins vegar ekki gefið nein fyrirframsvör um hvaða skilyrði og hvaða leyfi sjávarútvegsráðherrar framtíðarinnar muni veita. Verði þetta frv. að lögum sem ég vona að verði verða að sjálfsögðu bæði samgrh. og sjútvrh. að fara að þeim ákvæðum sem lögin fela í sér, setja þau skilyrði sem þar er gert ráð fyrir að séu sett, en að öðru leyti er ekki hægt að gefa neinar yfirlýsingar um það fyrir fram hvaða leyfi verða veitt. En ég undirstrika, endurtek og ítreka að það eru heildarhagsmunir okkar Íslendinga sem þarf að hafa að leiðarljósi.