Flm. (Jóhanna Sigurðardóttir) (andsvar):
Herra forseti. Þegar við ræddum fátækt um daginn vísaði hæstv. forsrh. bara vandanum yfir á sveitarfélögin. Það er alveg ljóst að fjárhagsaðstoð hefur blásið út hjá sveitarfélögunum vegna þess að ríkisvaldið hefur skert kjör lífeyrisþega og atvinnulausra og ekki greitt þeim þær bætur og þann lífeyri sem samræmist hækkun á launavísitölu. Þess vegna hefur fjárhagsaðstoð sveitarfélaga blásið út, og hæstv. forsrh. segir að fátækt sé bara málefni þeirra.
Mér heyrðist þess sama gæta hjá hv. þm. Kristjáni Pálssyni. Hann segir: ,,Ja, vextirnir eru svona háir en sveitarfélögin geta þá gert sitt til þess að þurfa ekki að hækka leiguna.`` Vandanum er bara vísað yfir á sveitarfélögin og það leysir ekki neyð þess fólks sem er á biðlistunum. Og það er rangt hjá hv. þingmanni að biðlistarnir hafi styst. Þeir hafa þvert á móti verið að lengjast vegna þess að þeim fjölgar sem geta ekki nýtt sér það sem annars er í boði hjá Íbúðalánasjóði, þ.e. þessi viðbótarlán eða bara húsbréfakerfið almennt. Við eigum að viðurkenna að það þurfi að vera valkostir í húsnæðismálum, raunverulegir valkostir með viðráðanlegum kjörum fyrir alla hópa fólks hvar sem þeir standa í tekjuskalanum. Það sem því miður hefur ekki verið gert hér á landi á síðustu árum er að viðurkenna að hópar eru mismunandi settir í þjóðfélaginu. Við erum með allt of stóran hóp sem þarf að lifa af kannski 90 þús. upp í 140--150 þús. á mánuði. Þetta er mjög stór hópur, og hann getur ekki með góðu móti eignast þak yfir höfuðið heldur er ofurseldur leigumarkaðnum. Það þýðir ekki að bjóða þessu fólki upp á það að vextir séu frá 3,5% upp í nærri markaðsvexti sem mér heyrist að stefnt sé að vegna þess að alltaf er verið að draga úr niðurgreiðslum til leiguíbúða. Ég þykist vita að hv. þingmaður hafi einhvern skilning á þessu máli en því miður hefur hann stutt aðgerðir ríkisstjórnarinnar sem hafa torveldað fólki á leigumarkaðnum að eignast íbúðir á viðráðanlegum kjörum.