Innflutningur dýra

Þriðjudaginn 18. febrúar 2003, kl. 17:07:17 (3959)

2003-02-18 17:07:17# 128. lþ. 81.22 fundur 249. mál: #A innflutningur dýra# (rekstur sóttvarna- og einangrunarstöðva) frv., SJóh (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 81. fundur, 128. lþ.

[17:07]

Sigríður Jóhannesdóttir (andsvar):

Hæstv. forseti. Ef þessi reglugerð verður lögð fram á næstu vikum þá kvaka ég og þakka og fagna því innilega. En það er þá eitthvað meira en ég hef frétt og þangað til alla vega þá styð ég heils hugar þetta ágæta frv. frá Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur og fleirum sem skyldar ráðherra til að leyfa fleiri aðilum rekstur slíkra stöðva á eigin ábyrgð ef þeir uppfylla öll skilyrði sem lögin setja.