Fyrirspyrjandi (Jón Bjarnason):
Herra forseti. Ég þakka þessar ágætu umræður um skólamál, um framhaldsskólamálin. Ég ítreka það að við í Vinstri hreyfingunni -- grænu framboði leggjum þunga áherslu á menntamálin og ekki síst á menntun ungs fólks á þessum aldri, vegna þess að það skiptir gríðarlega miklu máli. Þar virðist í framkvæmdinni vera pottur brotinn þegar nærri helmingur af nemendum sem fara í framhaldsskóla ljúka honum ekki með eðlilegum hætti. En það er ekkert bundið við þessi landsvæði, ég vil taka það skýrt fram. Ég vil líka vekja athygli á því hversu mikilvægt er einmitt á þessu svæði, Stór-Reykjavíkursvæðinu, að horft sé á þetta mál heildstætt, uppbyggingu skólamála, uppbyggingu framhaldsskólakerfisins, að horft sé á það heildstætt fyrir allt svæðið.
Ég lít einnig svo á og það er stefna Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs, að fólk a.m.k. upp að 18 ára aldri eigi að geta sótt nám heiman að frá sér og geti jafnframt verið hluti af því nærsamfélagi sem það býr í, og ég held að bæði Mosfellingar og önnur bæjarfélög og samfélög muni líka huga að því að geta verið sem lengst í nánum tengslum við börnin og unglingana og byggt upp félags- og menningarlíf þannig.
Mosfellingar eiga líka dýrmætar auðlindir og sérstöðu, ég nefndi Reykjalund áðan, og náttúru og útivist.
Herra forseti. Þessi fyrirspurn var fyrst og fremst lögð fram til að árétta þessi sjónarmið um mikilvægi uppbyggingu framhaldsskólanna og að skipuleggja hlutina hér í stærra samhengi og einnig að hvetja til þess að aukið átak sé gert á því sviði á þessu svæði sem og öðrum í landinu.