Réttarstaða fólks í hjúskap og óvígðri sambúð

Miðvikudaginn 19. febrúar 2003, kl. 15:40:22 (4038)

2003-02-19 15:40:22# 128. lþ. 83.9 fundur 562. mál: #A réttarstaða fólks í hjúskap og óvígðri sambúð# fsp. (til munnl.) frá dómsmrh., Fyrirspyrjandi RG
[prenta uppsett í dálka] 83. fundur, 128. lþ.

[15:40]

Fyrirspyrjandi (Rannveig Guðmundsdóttir):

Virðulegi forseti. Ég ber fram svohljóðandi fyrirspurn til hæstv. dómsmrh., með leyfi forseta:

,,Hefur ráðherra beitt sér fyrir kynningu á réttarstöðu fólks í hjúskap og óvígðri sambúð, samanber ályktun Alþingis um mótun opinberrar fjölskyldustefnu og aðgerðir til að styrkja stöðu fjölskyldunnar frá 13. maí 1997? Ef svo er, hvernig hefur kynningarstarfsemi verið háttað?``

Í þál. um fjölskyldustefnu sem Alþingi samþykkti segir, með leyfi forseta:

,,5. Að réttindi og skyldur sambúðarfólks verði kynnt og skilgreind í lögum.``

Í nál. félmn. eftir að nefndin afgreiddi tillöguna frá sér segir að hún vilji leggja áherslu á að upplýsingar og fræðsluefni um samanburð á réttarstöðu fólks í hjúskap og óvígðri sambúð þurfi að liggja fyrir og bendir á nauðsyn þess að slíkt efni verði kynnt almenningi. Einnig er lagt til að það verði eitt af almennum markmiðum stjórnvalda að fjölskyldur sjúkra og annarra hópa eftir því sem við á skuli, eins og fjölskyldur fatlaðra, njóta nauðsynlegs stuðnings í ljósi aðstæðna hverju sinni. Enn fremur verði að efla skilning á eðli fjölskyldunnar, hlutverki, myndun og upplausn.

Því nefni ég þessi síðari atriði að þau eru auðvitað nátengd fólki í hjúskap. Alkunna er að almenningur er óupplýstur um réttindi og skyldur í svo veigamiklum málum sem stofnun hjúskapar er og það er allt of útbreidd lögvilla að fólk heldur að allt aðrar reglur gildi um óvígða sambúð en raun ber vitni.

Lögmenn segja að það sé allt of algengt að fólk haldi að það ávinni sér einhver lagaleg réttindi við óvígða sambúð, ýmist eftir einhvern tíma, eða eftir að sambúðarfólk hefur eignast börn saman. Þegar síðan allt er komið í óefni í sambúðinni eða við andlát annars sambúðaraðila, kemur í ljós að hitt er algjörlega réttlaust varðandi eignaskiptingu, rétt til setu í óskiptu búi eða erfðarétt.

Virðulegi forseti. Ég hef hreyft þessu máli áður við fyrirrennara hæstv. dómsmrh. Þá var því svarað til að drög að upplýsingaritum lægju fyrir og yrðu gefin út fljótlega. Mér fannst því mikilvægt að fá leitt í ljós hvort þeim hefur verið komið út, hvar þau er að finna og að það sé þá upplýst hér á hæstv. Alþingi.