Tilkynning um úrsögn úr þingflokki

Mánudaginn 03. mars 2003, kl. 15:00:54 (4237)

2003-03-03 15:00:54# 128. lþ. 86.92 fundur 460#B tilkynning um úrsögn úr þingflokki#, Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 86. fundur, 128. lþ.

[15:00]

Forseti (Halldór Blöndal):

Borist hefur svohljóðandi bréf, dags. í Reykjanesbæ 3. mars, stílað á forseta Alþingis:

,,Það tilkynnist yður hér með, herra forseti, að ég undirritaður hef sagt mig úr þingflokki Sjálfstæðisflokksins og Sjálfstæðisflokknum. Ég mun það sem eftir lifir þessa kjörtímabils starfa á Alþingi sem óháður þingmaður.

Virðingarfyllst,

Kristján Pálsson, 8. þm. Reykn.``