Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson):
Herra forseti. Atvinnuleysisbætur voru hækkaðar um 5% um sl. áramót. Það er skemmst frá því að segja að ég mun ekki beita mér fyrir því að hækka atvinnuleysisbætur upp að lágmarkslaunum eða gera þær jafnar lágmarkslaunum því að ég tel að það þurfi að vera einhver hvati til þess að taka vinnu fremur en vera á bótum.
Hitt get ég verið sammála hv. fyrirspyrjanda um, að atvinnuleysisbætur eru lágar og ég tel að það sé til athugunar að lyfta þeim eitthvað, sérstaklega með tilliti til þess þegar atvinnuleysi er búið að standa í marga mánuði. En að hækka þær upp í lágmarkslaun tel ég ekki skynsamlegt.