Dómsmálaráðherra (Sólveig Pétursdóttir):
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. fyrir ábendingar þeirra og ég tel sjálfsagt að þetta frv. fái góða skoðun í allshn. Alþingis.
Staðreyndin er hins vegar sú að þegar litið er á núgildandi lögmannalög er ekki að finna í þeim skilgreiningu á því hvað skuli kenna í laganámi. Samkvæmt þeim er það í höndum lagadeildar Háskóla Íslands undir lögbundnu eftirliti menntmrn. Aðrir háskólar þurfa að starfa á sama grundvelli. Hv. þm. Jónína Bjartmarz minntist hér einmitt á lög um háskóla og ég vil sérstaklega vekja athygli á 1. og 2. mgr. 4. gr. þar sem kveðið er á um hlutverk menntmrh., m.a. um að hafa eftirlit með gæðum menntunar sem háskólar veita, og eins 3. og 4. mgr. 9. gr. Þar segir, með leyfi virðulegs forseta:
,,Menntamálaráðherra skal gefa út skrá um viðurkenndar prófgráður og inntak þeirra.
Nánari fyrirmæli um kennslu, nám og prófgráður eru sett í reglugerðir, samþykktir eða skipulagsskrá um hvern háskóla.``
Reyndar má með nokkrum sanni segja að með þeirri lagabreytingu sem nú liggur fyrir í því frv. sem hér er til umræðu sé í fyrsta sinn í lögum fjallað efnislega um nám þeirra sem sækjast eftir lögmannsréttindum. Það er kveðið á um það að menn skuli hafa lokið fullnaðarnámi í lögfræði og vísað til þess í greinargerð að út frá því sé gengið að nemandi hafi öðlast þekkingu á undirstöðugreinum lögfræðinnar. Það má heldur ekki gleymast að til þess að öðlast lögmannsréttindi þurfa menn að sitja námskeið og standast prófraun. Þeim sem ekki hafa fullnægjandi undirbúning mun þá auðvitað reynast erfitt að standast hana.
Ég vil að lokum segja að ég tel í sjálfu sér ástæðu til að ræða a.m.k. samræmingu á laganámi hér á landi og mér þykir ekki óeðlilegt að sú hlið málsins komi til umræðu í hv. allshn. Það gefur hins vegar ekki tilefni til þess að sú lagabreyting sem hér er lögð til nái ekki fram að ganga. Hún snýr einungis að því að þeir sem útskrifast með sambærilegt nám úr öðrum háskólum en Háskóla Íslands eigi sömu möguleika á því að öðlast þessi mikilvægu atvinnuréttindi. Málið snýst um jafnræði fyrst og síðast.