Þuríður Backman:
Herra forseti. Álver við Reyðarfjörð er forsenda Kárahnjúkavirkjunar. Þessar framkvæmdir verða ekki slitnar í sundur. Ég fordæmi þau miklu og óafturkræfu náttúruspjöll sem verða vegna Kárahnjúkavirkjunar. Landið og náttúran norðan Vatnajökuls er sérstök og gefa okkur möguleika á að stofna einstakan þjóðgarð með stærstu ósnortnu víðerni Evrópu. Ég trúi ekki á álframleiðslu sem lausn í byggðamálum en þeim sem binda vonir við þetta álver hlýt ég að óska alls hins besta. Ég greiði atkvæði gegn frv.