Dómsmálaráðherra (Sólveig Pétursdóttir):
Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til laga um breytingu á mörkum Suðvesturkjördæmis og Reykjavíkurkjördæmis suður.
Frumvarpið er lagt fram vegna samkomulags Reykjavíkurborgar og Kópavogsbæjar um breytingu á mörkum sveitarfélaganna við Blesugróf, samanber auglýsingu félmrn. frá 25. febrúar 2003.
Samkvæmt samkomulaginu breytast mörk sveitarfélaganna með þeim hætti að hluti Blesugrófar sem nú tilheyrir Kópavogi verður innan marka Reykjavíkurborgar. Á þessu svæði búa tíu manns, sem munu eftir breytinguna tilheyra Reykjavíkurkjördæmi suður.
Ég vek athygli á því að skv. 2. mgr. 129. gr. laga um kosningar til Alþingis, verður kjördæmamörkum ekki breytt nema með samþykki 2/3 hluta atkvæða á Alþingi.
Herra forseti. Ég legg til að frv. verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. allshn. og 2. umr.