Viðskiptaráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. fyrir hlý orð í garð ríkisstjórnarinnar. Hann telur að hún vilji láta gott af sér leiða og það er hárrétt hjá hv. þm. Ég freistast til að minna hann á ástæður þess að við getum látið gott af okkur leiða með þessu móti, m.a. þá staðreynd að við höfum verið að selja bankana. Á síðustu níu mánuðum eru það upphæðir upp á eina 32 milljarða. Þetta skulum við hafa í huga.
En af því að hv. þm. spurði sérstaklega um atvinnuþróunarfélögin þá er, með þessum 6,3 milljörðum, verið að tala um eingreiðslu. Við erum ekki að leggja fjármagn inn í rekstur. Þess vegna munu þessir fjármunir ekki fara til rekstrar atvinnuþróunarfélaganna. Ég vil segja hv. þm. að atvinnuþróunarfélögin eru bærilega sett. Þau fengu viðbótarfjármagn í gegnum Byggðastofnun og auk þess örlitla upphæð til viðbótar frá ríkisstjórninni. Þótt það nái ekki þeirri upphæð sem óskað var eftir af þeirra hálfu, sem var um 120 millj., eru þau bærilega sett.
Ég vil líka taka fram að það hefur náðst samkomulag milli atvinnuþróunarfélaganna og Byggðastofnunar um hvernig staðið skuli að málum og í hvaða farvegi þessi starfsemi skuli vera. Það tel ég mjög jákvætt.
Um þessar aðgerðir er það að segja að þær eru almennt mjög mikilvægar og ekki síst þær 700 millj. sem fara til atvinnuþróunarátaks á landsbyggðinni. Þessa dagana er verið að móta tillögur, móta rammann um hvernig þeim fjármunum skuli varið. Þar mun Byggðastofnun hafa miklu hlutverki að gegna og einnig vinna með atvinnuþróunarfélögunum að því að ráðstafa þessu fé.