Jón Bjarnason (andsvar):
Herra forseti. Ég bara ítreka það og tek undir með hæstv. ráðherra að norðvesturland þarf sérstaks átaks við, þarf sérstakan bakstuðning. Þar er ekki lausnin að selja húsin sín eða þau fyrirtæki sem innan þess fjórðungs eru til þess að efla atvinnulífið. Það er ekki lausnin og ég frábið mér slíkar leiðir. Ég ítreka að mér finnst að þessi landshluti eigi að njóta forgangs við ráðstöfun á auknu fjármagni til atvinnulífsuppbyggingar og sömuleiðis finnst mér, eins og ég gerði grein fyrir áðan, að það eigi að skoða líka annað. Við eigum ekki að þurfa að sjá annars vegar fallega fyrirsögn á frv. til fjáraukalaga vegna aðgerða í atvinnu- og byggðamálum og að samtímis komi svo líka fréttir utan af landsbyggðinni um að opinberar stofnanir þurfi að skera niður og segja upp fólki í brýnum verkefnum vegna fjárskorts, samanber fréttina af sjúkrahúsinu á Sauðárkróki. Ég vona að allt verði þetta tekið til vinnu innan hv. fjárln. og að það frv. til fjáraukalaga sem við erum hér með til meðferðar verði í enn ríkari mæli styrkur til aðgerða í atvinnu- og byggðamálum.