Jón Bjarnason (andsvar):
Herra forseti. Það fór hv. þm. einkar vel í munni, fannst mér, eða hann naut þess að tala um mengandi stóriðju. Hann tvítók orðin mengandi stóriðja. Ég deili ekki hrifningu hv. þm., sem hann lýsti þarna, á því að byggja hér upp mengandi stóriðju. Við hljótum að leggja áherslu á, hver svo sem iðnaðurinn er, að hann sé ekki mengandi og draga úr allri mengun eins og hægt er, en ekki hlakka yfir uppbyggingu á mengandi stóriðju. Ég hef ekki heyrt þingmenn Vinstri grænna tala niður til starfsfólks í neinni stétt. Það er bara illa sagt. (GuðjG: Það er nú rétt samt.) Það er bara rangt, herra forseti. (GuðjG: Lesa þingtíðindin.) Hins vegar ítreka ég það varðandi það að heyra hv. þm. tala hlakkandi um uppbyggingu á mengandi stóriðju. Ég held að enginn Íslendingur hlakki yfir því, virðulegi forseti. Ég vona, þó svo að ráðist verði í framkvæmdir þarna á Grundartanga, að menn reyni að draga úr allri mengun eins og nokkur kostur er og hvar sem við byggjum upp atvinnulíf, virðulegi forseti.
Ég legg áherslu á að þetta mál fái mjög ítarlega umfjöllun af hálfu Alþingis þannig að við sjáum alla hluti varðandi þessar mögulegu framkvæmdir í hinu stóra samhengi. (GuðjG: Er þingmaðurinn á móti stækkuninni?)